Persónuverndarstefna
Síðast uppfært: 12. október 2026
1. Ábyrgðaraðili
Skrif ehf., kt. 541025-2190, Ísland, [email protected]
Skrif ehf. ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga vegna notendareikninga, vefsins og samskipta við okkur. Félagið er ábyrgðaraðili þeirrar vinnslu í skilningi laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679 (GDPR).
Viðskiptavinur er ábyrgðaraðili þegar Skrif vinnur persónuupplýsingar fyrir hans hönd, svo sem upplýsingar í bókhalds- og fjárhagsgögnum hans. Skrif er þá vinnsluaðili og um vinnsluna gildir vinnslusamningurinn í viðauka A við viðskiptaskilmálana.
2. Hvaða upplýsingum söfnum við
2.1 Persónuupplýsingar við skráningu
- Nafn, netfang, símanúmer (ef veitt)
- Innskráningargögn frá innskráningarþjónustum (t.d. Google)
- Notandanafn og prófílmynd
2.2 Viðskipta- og fyrirtækjaupplýsingar
- Nafn fyrirtækis, kennitala, VSK-númer
- Heimilisfang, rekstrarform, atvinnugrein
2.3 Fjárhagsgögn
- Bankareikningsnúmer og tegund reiknings
- Bankahreyfingar (fjárhæðir, dagsetningar, lýsingar, tilvísanir)
- Kreditkortagögn og kreditkortahreyfingar
- Stöður reikninga
2.4 Bókhaldsgögn
- Bókhaldsfærslur (debet/kredit)
- Viðskiptavinir (nöfn, netföng, símanúmer, heimilisföng)
- Lánardrottnar (nöfn, tilvísanir)
- Starfsmenn (nöfn, netföng, símanúmer, heimilisföng, ráðningardagar, kennitölur)
- Reikningar og kostnaðarfærslur
2.5 Spjallgögn
- Skilaboð sem þú sendir til Skrif
- Svör frá Skrif og aðgerðasaga
- Upplýsingar sem Skrif greinir og vistar um fyrirtækið þitt
2.6 Skrár sem hlaðið er upp
Við söfnum öllum skrám sem þú hleður upp, svo sem PDF-skjölum, myndum, bankayfirlitum og reikningum.
2.7 Gögn sem safnast sjálfkrafa
- Tækjaupplýsingar (vafri, stýrikerfi)
- IP-tala og almenn staðsetning
- Hvaðan þú komst inn á vefinn (tilvísunarslóð og herferðarauðkenni)
- Notkunargögn og villuboð úr vafra (eingöngu ef þú hefur samþykkt greiningarkökur)
- Vafrakökur (sjá kafla 7)
2.8 Greining og sérsniðin þjónusta
Til að veita þér sérsniðna þjónustu greinum við gögn fyrirtækisins þíns. Þannig útbúum við meðal annars sjálfvirkar bókhaldstillögur, fjárhagslegar samantektir og skýrslur. Greiningin fer eingöngu fram í þína þágu. Gögn eru aldrei seld eða notuð í þágu þriðja aðila.
3. Hvernig við notum gögn þín
| Hvað við gerum | Af hverju | Lagagrundvöllur (GDPR) |
|---|---|---|
| Stofnun og rekstur reiknings | Nauðsynlegt til að veita þér þjónustuna | 6(1)(b) |
| Samstilling bankagagna | Kjarni þjónustunnar | 6(1)(b) |
| Samstilling bókhaldsgagna | Kjarni þjónustunnar | 6(1)(b) |
| Greining fjárhagsgagna með gervigreind | Kjarni þjónustunnar | 6(1)(b) |
| Spjall við Skrif | Kjarni þjónustunnar | 6(1)(b) |
| Geymsla skjala og skráa | Hluti af þjónustunni | 6(1)(b) |
| Greining og sérsniðnar skýrslur | Hluti af þjónustunni | 6(1)(b) |
| Sending tilkynninga í tölvupósti | Hluti af þjónustunni | 6(1)(b) |
| Varðveisla gagna meðan þjónustusamningur er í gildi | Nauðsynlegt til að veita þér þjónustuna | 6(1)(b) |
| Varðveisla gagna í 30 daga eftir lokun reiknings | Til að gefa þér tækifæri til að endurheimta gögn | 6(1)(f) |
| Greining á notkun og villuleit | Til að viðhalda þjónustunni og bæta hana | 6(1)(f) |
| Notkunargreiningar í vafra | Eingöngu ef þú samþykkir | 6(1)(a) |
4. Vinnsluaðilar
Eftirfarandi þjónustuveitendur vinna persónuupplýsingar fyrir okkar hönd:
| Vinnsluaðili | Land | Tilgangur |
|---|---|---|
| Cloudflare Workers | Næsta gagnaver (m.a. Ísland) | Hýsing og gagnavinnsla |
| Cloudflare R2 | ESB | Skráageymsla |
| Neon.tech | ESB | Gagnagrunnur (PostgreSQL) |
| Clerk | BNA | Auðkenning og innskráning |
| Anthropic | BNA | Gervigreindarvinnsla (Claude) |
| OpenAI | BNA | Gervigreindarvinnsla (GPT) |
| BNA | Gervigreindarvinnsla (Gemini) og tölvupóstur | |
| Fireworks AI | BNA | Gervigreindarvinnsla á eigin innviðum |
| TypeSafe AI | BNA | Gervigreindarvinnsla (Jev) |
| OpenRouter | BNA | Milligönguþjónusta fyrir gervigreindarvinnslu |
| Postmark | BNA | Tölvupóstsending |
| PostHog | ESB | Greiningar og villuboð |
| Slack | BNA | Innri tilkynningar |
| Já hf. | Ísland | Uppflettingar á fyrirtækjum og einstaklingum |
| Arion banki | Ísland | Bankatenging |
| Landsbankinn | Ísland | Bankatenging |
| Íslandsbanki | Ísland | Bankatenging |
| Payday | Ísland | Bókhaldskerfatenging |
| Dk Plus | Ísland | Bókhaldskerfatenging |
| Regla | Ísland | Bókhaldskerfatenging |
| Uniconta | Danmörk | Bókhaldskerfatenging |
| Microsoft Business Central | Samkvæmt stillingu notanda | Bókhaldskerfatenging |
| Unimaze | Ísland | Rafrænir reikningar |
Vinnsla banka, bókhaldskerfa og Unimaze byggist þó á samningum viðskiptavinar við þau. Þau eru ekki undirvinnsluaðilar Skrif.
4.1 Hvenær deilum við gögnum
Við deilum persónuupplýsingum þínum eingöngu þegar:
- Nauðsynlegt er til að veita þér þjónustuna (t.d. senda gögn til gervigreindarþjónustu)
- Þú hefur gefið samþykki
- Lög eða dómsúrskurður krefjast þess
- Nauðsynlegt er til að vernda réttindi, eigur eða öryggi okkar eða annarra
4.2 Hvað gerum við ekki
- Við seljum ekki persónuupplýsingar þínar
- Gervigreindarþjónustur sem við notum þjálfa ekki líkön sín á gögnum þínum
- Gögnin þín eru eingöngu aðgengileg vinnsluaðilum sem tilgreindir eru í kafla 4
5. Flutningur gagna til landa utan EES
Margir vinnsluaðila okkar eru í Bandaríkjunum. Við tryggjum fullnægjandi vernd persónuupplýsinga sem fluttar eru út fyrir Evrópska efnahagssvæðið með:
- Ákvörðun ESB um fullnægjandi vernd vegna gagnaverndarrammans milli ESB og Bandaríkjanna (EU-US Data Privacy Framework), þegar vinnsluaðili er vottaður samkvæmt rammanum
- Stöðluðum samningsákvæðum (SCCs) samkvæmt framkvæmdarákvörðun ESB 2021/914, þegar vinnsluaðili er ekki vottaður samkvæmt DPF
Hafðu samband við okkur ef þú vilt óska eftir afriti af viðeigandi samningsákvæðum.
6. Varðveislutími
| Gögn | Tími | Ástæða |
|---|---|---|
| Notandagögn | Meðan reikningur er virkur + 30 dagar | Þjónustufyrirkomulag |
| Fyrirtækjaupplýsingar | Meðan reikningur er virkur + 30 dagar | Þjónustufyrirkomulag |
| Fjárhagsgögn og bankahreyfingar | Meðan reikningur er virkur + 30 dagar | Þjónustufyrirkomulag |
| Bókhaldsgögn | Meðan reikningur er virkur + 30 dagar | Þjónustufyrirkomulag |
| Spjallsaga | Meðan reikningur er virkur + 30 dagar | Þjónustufyrirkomulag |
| Skjöl og skrár | Meðan reikningur er virkur + 30 dagar | Þjónustufyrirkomulag |
| Greiningar og skýrslur | Meðan reikningur er virkur + 30 dagar | Þjónustufyrirkomulag |
| Gögn frá PostHog | Samkvæmt PostHog stillingu | Samþykki |
Eftir að gögnum hefur verið eytt er öryggisafritum þeirra eytt innan 13 mánaða. Reikninga sem Skrif gefur út til viðskiptavina varðveitum við í sjö ár samkvæmt lögum nr. 145/1994 um bókhald.
7. Vafrakökur
Við notum eftirfarandi vafrakökur:
| Tegund | Veitandi | Tilgangur | Samþykki |
|---|---|---|---|
| Nauðsynlegar | Clerk | Innskráning og auðkenning | Ekki krafist |
| Nauðsynlegar | Skrif | Val um vafrakökur | Ekki krafist |
| Greiningar | PostHog | Notkunargreiningar og villuleit | Krafist |
| Markaðskökur | Google og Meta | Mælingar á árangri auglýsinga og sérsniðnar auglýsingar | Krafist |
Greiningar- og markaðskökur eru ekki virkjaðar fyrr en þú hefur samþykkt þær. Þú getur breytt stillingum þínum hvenær sem er, í appinu undir Stillingar > Persónuvernd og á skrif.com með því að smella á Vafrakökur neðst á síðunni.
Með samþykki þínu fá Google Ireland Limited og Meta Platforms Ireland Limited upplýsingar um heimsóknir á skrif.com, sendar fyrirspurnir og nýskráningar í appinu til að mæla árangur auglýsinga og birta auglýsingar Skrif, t.d. þeim sem hafa heimsótt vefinn. Google vinnur þær sem sjálfstæður ábyrgðaraðili samkvæmt persónuverndarstefnu Google. Skrif og Meta eru sameiginlegir ábyrgðaraðilar að söfnun upplýsinganna og sendingu þeirra til Meta, sbr. viðauka Meta um ábyrgðaraðila, en eftir það vinnur Meta þær samkvæmt persónuverndarstefnu Meta.
8. Réttindi þín
Lög nr. 90/2018 og reglugerð ESB 2016/679 (GDPR) veita þér eftirfarandi réttindi:
| Réttindi | Lýsing |
|---|---|
| Aðgangsréttur | Fá afrit af persónuupplýsingum þínum |
| Réttur til leiðréttingar | Leiðrétta rangar upplýsingar |
| Réttur til eyðingar | Eyða persónuupplýsingum |
| Réttur til takmörkunar | Takmarka vinnslu gagna þinna |
| Gagnaflutningsréttur | Fá gögn þín á véllæsilegu formi |
| Andmælaréttur | Andmæla vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum |
| Réttur til afturköllunar samþykkis | Hvenær sem er, án þess að lögmæti fyrri vinnslu sé skert |
8.1 Takmarkanir á réttindum
Við kunnum að hafna eða takmarka beiðni ef:
- Ekki tekst að sannreyna hver þú ert
- Gögnin hafa verið ópersónugreind eða eydd
- Lagaskylda stendur í vegi
- Beiðnin er augljóslega ástæðulaus eða óhófleg
Hafðu samband við okkur á [email protected] til að nýta þessi réttindi. Við svörum innan 30 daga (framlenganlegt í 90 daga við flókin erindi).
Þú átt einnig rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd (personuvernd.is).
9. Öryggi
Fjárhagsgögn þín falla undir trúnaðarskyldu okkar. Öll gögn eru dulkóðuð við flutning (TLS) og í geymslu. Aðgangi er stýrt með hlutverkatengdum heimildum.
Ef öryggisbrestur verður bregðumst við við í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
10. Börn
Skrif er ekki ætlað einstaklingum yngri en 18 ára og við söfnum ekki vísvitandi persónuupplýsingum frá börnum. Samþykkisaldur vegna persónuverndar á Íslandi er 13 ár samkvæmt 10. gr. laga nr. 90/2018. Vegna þess að þjónustan snýr að fjármálagögnum og bókhaldi gerir Skrif þó kröfu um 18 ára aldur.
11. Breytingar á stefnunni
Stefnan er uppfærð eftir þörfum og dagsetningin efst á síðunni vísar ávallt til nýjustu útgáfu hennar. Við tilkynnum sérstaklega um verulegar breytingar.
12. Hafðu samband
Þú getur haft samband með tölvupósti á [email protected]. Við svörum erindum innan 30 daga.