← Til baka

Viðskiptaskilmálar

Síðast uppfært: 12. október 2026

1. Almenn ákvæði

Um notkun hugbúnaðar og þjónustu Skrif ehf. („Skrif“, „við“, „okkar“) gilda þessir viðskiptaskilmálar („skilmálar“). Notandi („þú“, „notandi“) samþykkir skilmálana í heild með því að skrá sig eða nota þjónustuna.

Þjónustan er ætluð fyrirtækjum og einstaklingum í atvinnurekstri sem nota hana í viðskiptalegum tilgangi. Þegar þú skráir þig staðfestir þú að notkunin tengist atvinnurekstri þínum eða starfi.

Skrif ehf., kt. 541025-2190, VSK-númer 161013, Naustavör 52, 200 Kópavogur, [email protected]

2. Lýsing á þjónustu

Skrif er hugbúnaður sem aðstoðar bókara, bókhaldsstofur og atvinnurekendur við daglega bókhaldsvinnu. Í gervigreindarspjallinu getur notandi meðal annars stofnað bókhaldsfærslur og reikninga, skráð kostnað, viðskiptavini, lánardrottna og starfsmenn, hlaðið upp skjölum og flett upp gengi og reglum. Þar má einnig fá svör við spurningum um bókhald og rekstur. Notandi þarf að samþykkja allar aðgerðir áður en þær eru framkvæmdar. Þjónustan notar gervigreind til stuðnings við sjálfvirka afstemmingu bankahreyfinga og kreditkortafærslna við bókhaldsgögn. Einnig er hægt að afstemma handvirkt. Til að veita sérsniðna þjónustu greinir Skrif upplýsingar um fyrirtæki notanda og vistar þær. Greiningin fer eingöngu fram í þágu notanda.

Gögn eru samstillt sjálfvirkt með tengingum Skrif við vefþjónustur bókhaldskerfa (t.d. Payday og Dk Plus) og banka (t.d. Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans). Skrif framkvæmir engar greiðslur. Hugbúnaðurinn er ekki bókhaldskerfi í skilningi reglugerðar nr. 505/2013. Notandi ber ábyrgð á eigin bókhaldi og varðveislu bókhaldsgagna samkvæmt lögum nr. 145/1994 um bókhald.

Þjónustan kemur ekki í stað löggiltra endurskoðenda, bókara eða skattaráðgjafa og hentar best notendum sem hafa grunnþekkingu á bókhaldi eða vinna með fagaðilum. Þótt Skrif geti veitt ráðgjöf og lagt fram tillögur er það ávallt á ábyrgð notanda að yfirfara og staðfesta allar upplýsingar.

3. Notkun gervigreindar

Skrif notar gervigreindarþjónustur frá þriðju aðilum (þ. á m. Anthropic, OpenAI, Google, Fireworks AI, TypeSafe AI og OpenRouter) til að knýja spjallið, greina fjárhagsgögn, afstemma bankahreyfingar o.s.frv. Nánari upplýsingar um gagnavinnslu er að finna í persónuverndarstefnu okkar.

Við notkun gervigreindarþjónustunnar skal notandi hafa eftirfarandi í huga:

  1. Gervigreind vinnur allar tillögur Skrif, þar á meðal tillögur að bókhaldsfærslum, flokkanir og svör í spjalli. Þær geta verið rangar, ófullkomnar eða misvísandi.
  2. Notandi þarf að yfirfara og staðfesta allar gervigreindartillögur áður en þær eru nýttar. Hann ber fulla ábyrgð á þeirri yfirferð og staðfestingu, einkum þegar um er að ræða bókhaldsfærslur, afstemmingar og fjárhagslegar samantektir.
  3. Svör gervigreindarinnar eru ekki fagleg bókhalds-, skatta- eða fjármálaráðgjöf. Allar ákvarðanir sem byggjast á upplýsingum úr þjónustunni eru á ábyrgð notanda.
  4. Í spjallviðmóti Skrif og við notkun sjálfvirkra aðgerða á notandi samskipti við gervigreindarkerfi en ekki mannlegan fagaðila.

Gervigreindarþjónustuveitendur okkar þjálfa ekki líkön sín á gögnum notenda og munu ekki gera það.

4. Reikningur og aðgangur

Skráning fer fram með innskráningarþjónustu, t.d. Google. Notandi ber ábyrgð á að skráningarupplýsingar séu réttar og uppfærðar, svo og á öllum aðgerðum sem fara fram á reikningi hans.

Notandi verður að hafa náð 18 ára aldri eða hafa samþykki forráðamanns.

Notendur geta stofnað fyrirtæki í Skrif og boðið öðrum að taka þátt. Ábyrgð á aðgangi meðlima og þeim gögnum sem unnin eru innan fyrirtækisins hvílir á eiganda þess.

5. Gögn notanda

Öll gögn sem notandi setur inn í Skrif eða sem sótt eru fyrir hans hönd úr bönkum eða bókhaldskerfum eru og verða eign hans. Skrif fær takmarkaðan og afturkallanlegan leyfisrétt frá notanda til að hýsa gögnin, geyma þau og vinna úr þeim til að veita þjónustuna og bæta hana.

Til að veita þjónustuna sendir Skrif gögn (t.d. lýsingar á bankahreyfingum, reikningsheiti og fjárhæðir) til gervigreindarþjónustuveitenda. Um meðferð persónuupplýsinga gildir persónuverndarstefna okkar sem telst hluti þessara skilmála.

Þegar unnið er með persónuupplýsingar sem notandi setur inn í Skrif eða sem sóttar eru fyrir hans hönd úr bönkum og bókhaldskerfum er viðskiptavinur ábyrgðaraðili og Skrif vinnsluaðili samkvæmt lögum nr. 90/2018 og reglugerð (ESB) 2016/679. Þetta á t.d. við um upplýsingar um starfsmenn, viðskiptavini og lánardrottna. Vinnslusamningurinn í viðauka A gildir um þessa vinnslu.

Fjárhagsgögn notanda falla undir trúnaðarskyldu Skrif. Meðferð þeirra fer eftir persónuverndarstefnu okkar.

6. Áskrift og greiðslur

Greitt er fyrir þjónustu Skrif og miðast innheimta við almanaksmánuð. Fyrsta dag hvers mánaðar er gefinn út reikningur vegna mánaðarins á undan og krafa send í heimabanka á kennitölu fyrirtækisins. Öll verð eru birt í íslenskum krónum án virðisaukaskatts. Virðisaukaskattur bætist ávallt við á reikningum. Skrif má breyta verðskrá með minnst 30 daga fyrirvara.

Gjalddagi reiknings er útgáfudagur hans (1. dagur útgáfumánaðar). Eindagi er 10. dagur útgáfumánaðar; beri þann dag upp á laugardag eða sunnudag færist hann fram á næsta virkan dag. Greiðist reikningur ekki á eindaga er Skrif heimilt að reikna dráttarvexti skv. 6. gr. laga nr. 38/2001 og innheimtukostnað skv. lögum nr. 95/2008.

Breyta má áskrift eða segja henni upp hvenær sem er með tölvupósti á [email protected]. Uppfærslur taka gildi þegar í stað og eru reiknaðar hlutfallslega innan tímabilsins. Lækkanir og uppsagnir taka gildi við lok yfirstandandi tímabils. Þær fella ekki niður greiðsluskyldu sem þegar hefur stofnast. Hafi reikningur ekki verið greiddur 30 dögum eftir eindaga má Skrif loka aðgangi þar til greiðsla hefur borist.

7. Skyldur notanda

Notandi samþykkir að nota þjónustuna eingöngu í lögmætum tilgangi og samkvæmt þessum skilmálum. Óheimilt er að:

  1. Nota þjónustuna í tengslum við svik, peningaþvætti eða aðrar ólögmætar athafnir.
  2. Reyna að komast inn í kerfið eða fá aðgang að gögnum annarra notenda án heimildar.
  3. Afla gagna sjálfvirkt, skrapa gögn eða safna þeim með öðrum kerfisbundnum hætti án skriflegs leyfis.
  4. Afþýða hugbúnaðinn eða endursmíða hann með öðrum hætti.
  5. Deila eigin reikningi með öðrum.

Reikningi getur verið lokað án fyrirvara ef brotið er gegn þessum ákvæðum.

8. Hugverkaréttur

Skrif ehf. á allan hugbúnað, vörumerki, hönnun og önnur hugverk sem tengjast Skrif. Vörumerkið Skrif er skráð hjá Hugverkastofu. Hugverkin eru vernduð af höfundarrétti samkvæmt lögum nr. 73/1972 og lögum um vörumerki nr. 45/1997.

Virk áskrift veitir notanda leyfi til að nota þjónustuna í eigin rekstri og starfi. Hann má bjóða öðrum að taka þátt í fyrirtæki sínu innan þjónustunnar en má ekki deila eigin reikningi með öðrum.

9. Fyrirvari og ábyrgðartakmarkanir

Þjónustan er veitt í því ástandi sem hún er hverju sinni. Engar sérstakar ábyrgðir eru veittar umfram þær sem lög kveða á um. Skrif ehf. ber ekki ábyrgð á óbeinu eða afleiddu tjóni vegna notkunar þjónustunnar, þar á meðal vegna:

  1. Taps sem má rekja til notkunar þjónustunnar.
  2. Sekta eða viðurlaga vegna ákvarðana sem teknar eru á grundvelli þjónustunnar.
  3. Villna í gögnum sem sótt eru úr bönkum eða bókhaldskerfum.
  4. Truflana á þjónustu, tafa á samstillingu eða gagnataps.

Bótaábyrgð Skrif ehf. getur ekki orðið hærri en sú fjárhæð sem notandi hefur greitt fyrir þjónustuna síðustu 12 mánuði.

Tjón sem stafar af svikum, stórfelldu gáleysi eða vísvitandi vanrækslu fellur ekki undir þessar takmarkanir.

10. Skaðleysi

Notandi skuldbindur sig til að halda Skrif ehf., hluthöfum, starfsmönnum og tengdum aðilum skaðlausum vegna krafna, tjóns eða kostnaðar sem stafar af notkun hans á þjónustunni, brotum hans á þessum skilmálum eða brotum á réttindum annarra.

11. Uppsögn

Hvenær sem er má breyta áskriftarleið eða segja áskrift upp með tölvupósti á [email protected]. Uppfærslur taka þegar gildi, en lækkanir og uppsagnir við lok yfirstandandi innheimtutímabils. Notanda ber áfram að greiða gjöld sem þegar hafa fallið til.

Skrif áskilur sér rétt til að loka fyrir aðgang að reikningi eða takmarka hann hvenær sem er og án fyrirvara, t.d. vegna skilmálabrota eða öryggisáhættu.

Notanda er veittur hæfilegur frestur eftir uppsögn til að sækja gögn sín. Uppsögn fellir ekki úr gildi ákvæði um ábyrgðartakmarkanir, skaðleysi og hugverkarétt.

12. Óviðráðanlegar aðstæður

Hvorugur aðili ber ábyrgð á töfum eða truflunum vegna aðstæðna sem hann ræður ekki við. Þar undir falla meðal annars náttúruhamfarir, farsóttir, verkföll, netárásir, rafmagns- eða fjarskiptabilanir og aðgerðir yfirvalda. Aðili sem verður fyrir slíkum aðstæðum skal tilkynna hinum aðilanum um þær eins fljótt og auðið er.

13. Lokaákvæði

Íslensk lög gilda um skilmálana og leggja skal deilur vegna þeirra fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur.

Skilmálarnir eru uppfærðir eftir þörfum. Dagsetningin efst á síðunni vísar ávallt til nýjustu útgáfu. Verulegar breytingar eru tilkynntar sérstaklega með að minnsta kosti 30 daga fyrirvara.

Ógildi eins ákvæðis þessara skilmála hefur ekki áhrif á gildi hinna ákvæðanna.

Þessir skilmálar ásamt persónuverndarstefnunni mynda allan samninginn milli notanda og Skrif nema um annað sé samið skriflega.

14. Hafðu samband

Þú getur haft samband með tölvupósti á [email protected]. Við svörum erindum innan 30 daga.

Viðauki A. Vinnslusamningur

Þessi viðauki er vinnslusamningur samkvæmt 28. gr. reglugerðar (ESB) 2016/679, sbr. lög nr. 90/2018. Hann nær til persónuupplýsinga sem notandi setur inn í þjónustuna eða tengir við hana. Fyrirtækið sem notar þjónustuna, þ.e. notandi, er ábyrgðaraðili og Skrif ehf. er vinnsluaðili. Ef notandi vinnur gögn fyrir aðra, t.d. í rekstri bókhaldsstofu, er Skrif undirvinnsluaðili hans. Notandi ábyrgist þá að hafa heimild þeirra til þess.

A.1 Vinnslan

Á meðan samningurinn er í gildi vinnur Skrif úr bókhalds- og fjárhagsgögnum notanda til að veita þjónustuna sem lýst er í 2. gr., þar á meðal vegna öryggis, villuleitar og gæðaeftirlits. Unnið er með nöfn, kennitölur, samskipta- og bankaupplýsingar, launa- og bókhaldsupplýsingar og aðrar upplýsingar í bókhaldsgögnum. Þetta eru upplýsingar um starfsmenn, viðskiptavini, lánardrottna og tengiliði notanda og viðskiptavina hans. Skrif er heimilt að gera gögnin ópersónugreinanleg til að bæta þjónustuna og vinna úr þeim ópersónugreinanlega tölfræði í eigin þágu sem sjálfstæður ábyrgðaraðili.

A.2 Skyldur Skrif

  1. Vinnsla Skrif á gögnunum fer eingöngu eftir fyrirmælum notanda, nema lög skyldi Skrif til annars. Fyrirmælin felast meðal annars í notkun notanda á þjónustunni. Ef lagaskylda krefst annarrar vinnslu tilkynnir Skrif notanda það fyrir fram, nema lög banni slíka tilkynningu. Skrif lætur notanda vita án tafar ef það telur fyrirmæli hans brjóta gegn lögum.
  2. Trúnaðarskylda hvílir á starfsfólki Skrif og fyrirtækið beitir viðeigandi öryggisráðstöfunum samkvæmt 32. gr. reglugerðarinnar.
  3. Skrif veitir notanda aðstoð við að svara beiðnum skráðra einstaklinga, við öryggi vinnslunnar, mat á áhrifum og samskipti við Persónuvernd. Skrif tilkynnir notanda um öryggisbrest án ótilhlýðilegrar tafar.
  4. Skrif veitir upplýsingar sem sýna fram á að þessar skyldur séu uppfylltar. Einnig heimilar Skrif úttektir notanda eða óháðs aðila á hans vegum. Úttektir skulu fara fram með hæfilegum fyrirvara og á kostnað notanda, að jafnaði skriflega og ekki oftar en árlega, nema öryggisbrestur eða Persónuvernd gefi tilefni til annars.

A.3 Undirvinnsluaðilar

Notandi heimilar Skrif að nota undirvinnsluaðila sem taldir eru upp í 4. kafla persónuverndarstefnunnar og flytja gögn út fyrir EES á grundvelli ákvörðunar um fullnægjandi vernd eða staðlaðra samningsákvæða. Skrif tilkynnir um nýja undirvinnsluaðila með hæfilegum fyrirvara og getur notandi sagt upp áskrift ef hann andmælir. Skrif leggur sömu skyldur á undirvinnsluaðila með samningi.

A.4 Lok samnings

Innan 30 daga frá lokum samnings getur notandi sótt gögn sín eða óskað eftir að þeim verði eytt. Að þeim fresti liðnum eyðir Skrif gögnunum, nema lög krefjist varðveislu þeirra, og eyðir öryggisafritum innan 13 mánaða. Notandi ber ábyrgð á að sækja gögnin innan frestsins og varðveita bókhaldsgögn samkvæmt lögum nr. 145/1994.